EINKASIGLINGAR
Einkasiglingar í Reykjavík
Leigðu einkabát fyrir fjölskyldu, vini eða samstarfsfólk um borð í Amelia Rose eða Axel Rose. Veldu bátinn sem hentar hópnum og við sjáum um rest.
Fá tilboðUpplifunin um borð
Við bjóðum fyrirtækjum, vinahópum og fjölskyldum alls kyns sérsniðnar einkasiglingar frá Reykjavík. Hvort sem tilefnið er stórafmæli, útskrift, starfsmannaferð eða einfaldlega góður dagur á sjó bjóða Amelia Rose og Axel Rose upp á einstakt umhverfi til að gera daginn ógleymanlegan.
Snekkjan er með vönduðu hljóðkerfi og leðursófum. Það hentar vel að hefja kvöldið með drykkjum við bryggju þegar gestir koma um borð og sigla síðan út á Faxaflóa við tónlist í einstöku umhverfi.
Einkasiglingin getur einnig falið í sér sjóstangveiði, krabbaveiði eða sérstaka upplifun okkar, „Borðaðu eins og víkingur“, svo eitthvað sé nefnt. Hvert sem tilefnið er sérsníðum við ferðina að þörfum hópsins.
Amelia Rose tekur allt að 100 gesti en Axel Rose allt að 20.
BÁTARNIR OKKAR
Veldu bát
Frá RIB-hraðbátum til lúxussnekkju — við eigum rétta bátinn fyrir hópinn þinn.
Óska eftir tilboði í einkasiglingu
Fylltu út formið og við sendum þér tilboð fljótlega.